Flokkað undir: Ég er Awesome
Ránfuglinn (ég) og upprennandi ránfuglinn, þeas. ránfuglsunginn (Hugi), fórum í besta mission heims í gær, laugardag.
Ég pikkaði hann upp á forsetakagganum og við stefndum beinustu leið á hátind lágmenningarinnar, Kringluna.
Þar gengum við hröðum skrefum að Dominos á Stjörnutorgi og pöntuðum okkur sitthvort Kanilgott.
Objective 1 accomplished.
Þá var förinni heitið í Hagkaup, neðri hæð, til að kaupa eitthvað að drekka, og við keyptum að sjálfsögðu stóra fernu af nammidrykk meistarans, Kókómjólk.
Objective 2 accomplished.
Fórum svo til baka á Stjörnutorg þar sem beið okkar rjúkandi heitt og ilmandi Kanilgott, bragðgóður glassúr í dollu og tvö stútfull glös af ískaldri Kókómjólk. Máltíð meistarans var tilbúin.
Mission Accomplished.
Ránfuglinn kveður.
P.S. Muna að biðja um auka glassúrdollu næst, ein er ekki nóg.
6 Ummæli hingað til
Skrá ummæli
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

þetta er fáránlegt blogg
Ummæli af albert maí 12, 2008 @ 11:50 amÉg elska jákvæðni.
Ég elska líka kanilgott, mmm.
Þó að ránfuglsunginn sé kannski ekki aaaalveg harðasta nafnið.
Ummæli af Hugi maí 12, 2008 @ 9:23 pmKókómjólk í stórri fernu er thingið mitt og Huga! Að hann skuli dirfast…..
En kanilgott er indælt =)
Ummæli af Þorfinnur maí 13, 2008 @ 12:44 pmSammála Berta í þetta skiptið. Innihaldslausasta blogg ever. Hefðiru sagt mér þessa “sögu” face to face þá hefði það líklega verið endirinn á okkar vináttu(e:friendship over Kiddi, friendship over). Hættu þessu sjitti og skrifaðu eitthvað alvöru. Eitthvað beint frá hjartarótunum…….
Ummæli af Helgi maí 14, 2008 @ 11:47 pmNæst þegar ég fer að fá mér skyndibita þá ætla ég að blogga um það.
djók
Ummæli af skúli maí 15, 2008 @ 12:52 amHelgi og Albert þið eruð prump, ég ætla að lesa þetta á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa.
Ég vil fá að vera með næst.
Ég drekk reyndar ekki kókómjólk… svo ég veit ekki hvort að það virki fyrir ykkur…
Ummæli af Hnossgæti a.k.a. Belafonte a.k.a. A-Glow maí 20, 2008 @ 11:55 pm