Hreiður Ránfuglsins


Fataskápur meistarans.
apríl 28, 2008, 12:45 am
Flokkað undir: Ég er Awesome

Gyðingurinn er ekki venjulegur maður. Gyðingurinn er enginn spói eða spörfugl! Sei sei nei. Gyðingurinn er ránfugl, svo stór og hættulegur ránfugl að honum hefur verið líkt við engan annan en Gullörnin, stærsta ránfugl jarðarinnar. Og ránfuglar eins og Gullörninn verða auðvitað að eiga föt til að vera í á meðan þeir veiða smærri spörfugla. Ég á föt og ég á fataskáp. Ég á meira að segja tussusvít fataskáp.

Fataskápurinn minn er tvískiptur. Tvisvar sinnum 1 x 2,34 m. Í einum helmingnum er skógrind, buxnaslá, bindaskúffa og skyrtuhengi. Allt litaraðað, að sjálfsögðu.

Hinum helmingnum er skipt í tvo hluta, annars vegar skúffu fyrir stuttermaboli (neðst niðri), sokka( miðjunni) og nærbuxur + náttföt (efst). Fyrir ofan þær skúffur koma tvær litlar. Ein fyrir silkiklúta, og ein læst fyrir úr, ermahnappa og meira gúmmelaði. Þar fyrir ofan er hengi fyrir jakka og frakka og pelsinn minn (allir ránfuglar eiga pels). Í hinum helmingnum er hilla fyrir peysur og skúffa fyrir lacoste bolina mína. Þar fyrir ofan og neðan er almennt geymslurými, fyrir out-of-season föt og gömul tímarit.

Fálkinn kveður.


2 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

Ágætisflipp…..ákvaðstu að stofna blogg svo að peningurinn sem fór í lénið færi ekki alveg í vaskinn…. ;) Djók, nú er ég andstyggilegur.

Gaman að sjá að þú ert farinn að spreða awesomeness rafrænt líka!

Kv.
Tumi

Ummæli af Tumi maí 4, 2008 @ 12:16 am

Þú gleymdir að minnast á litlu hilluna sem ég á :)

Ummæli af hrönn maí 14, 2008 @ 9:37 pm



Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>