Hreiður Ránfuglsins


Hestaferð, legen…wait for it… dary.
júní 15, 2008, 3:16 pm
Flokkað undir: Ég er Awesome

Kjeppz fór í hestaferð.

Það var awesome.

Það sem ég gerði í þessari ferð

  • Datt ekki af baki
  • Fékk geðveikt awesome wife-beater tan far
  • Leið eins og kúreka (Blondie / Clint Eastwood) Indjána (Sem er svít) og Aragorn (Viggo Mortensen) á sama tíma
  • Geðveikt landslag
  • Geðveikt veður
  • Geðveikur matur
  • Wife-Beater tan far (Awesome to the Max)

Ferðin fær high-five af high-five mögulegum



Topp 6 lifandi mikilmenni
júní 8, 2008, 11:28 pm
Flokkað undir: 6an

Og nokkrir punktar um afhverju þeir eru mikilmenni.

B. Thor Bjorgolfsson – 265 milljarðar króna (skv. Forbes 2007)

Power, money, that’s just the road to respect

  • Ríkasti maður Íslands.
  • Var bendlaður við rússnesku mafíuna (awesome) af dönskum fjölmiðlum.

Michael Bloomberg – 870 milljarðar króna (skv. Forbes 2007)

I am what I am and, you know, I’m a very lucky guy.

  • Borgarstjóri NYC
  • Er með 1$ (um 75 kr.) í árslaun hjá New York Borg

Barack Hussein Obama – 100 milljónir króna (skv. skattskýrslum)

Yes, we can

  • Svartur
  • Forsetaframbjóðandi Demókrata 2008
  • Svartur

Vladimir Putin - 3000 milljarðar króna (getgátur)

We shall fight against them, throw them in prisons and destroy them.

  • Hugsanlega ríkasti maður Evrópu
  • Ræður Rússlandi

Arnold Schwarzenegger – 65 milljarðar króna (skv skattskýrslum)

I’ll be back

  • Hr. Alheimur
  • Terminator
  • California

George Soros – 650 milljarðar króna (skv. Forbes 2007)

President Bush is endangering our safety, hurting our vital interests, and undermining American values.

  • Sakaður um að hafa valdið “Black Wednesday”
  • Sakaður um hlutdeild að markaðskrísunni í Asíu 1997


Kiddi verður Kiddi Lár
maí 12, 2008, 8:52 pm
Flokkað undir: Ég er Awesome

Kudos til Sigga Litla fyrir upptöku og klippingu



Besta. Mission. Í. Heimi.
maí 11, 2008, 6:41 pm
Flokkað undir: Ég er Awesome

Ránfuglinn (ég) og upprennandi ránfuglinn, þeas. ránfuglsunginn (Hugi), fórum í besta mission heims í gær, laugardag.

Ég pikkaði hann upp á forsetakagganum og við stefndum beinustu leið á hátind lágmenningarinnar, Kringluna.

Þar gengum við hröðum skrefum að Dominos á Stjörnutorgi og pöntuðum okkur sitthvort Kanilgott.

Objective 1 accomplished.

Þá var förinni heitið í Hagkaup, neðri hæð, til að kaupa eitthvað að drekka, og við keyptum að sjálfsögðu stóra fernu af nammidrykk meistarans, Kókómjólk.

Objective 2 accomplished.

Fórum svo til baka á Stjörnutorg þar sem beið okkar rjúkandi heitt og ilmandi Kanilgott, bragðgóður glassúr í dollu og tvö stútfull glös af ískaldri Kókómjólk. Máltíð meistarans var tilbúin.

Mission Accomplished.

Ránfuglinn kveður.

P.S. Muna að biðja um auka glassúrdollu næst, ein er ekki nóg.



Fataskápur meistarans.
apríl 28, 2008, 12:45 am
Flokkað undir: Ég er Awesome

Gyðingurinn er ekki venjulegur maður. Gyðingurinn er enginn spói eða spörfugl! Sei sei nei. Gyðingurinn er ránfugl, svo stór og hættulegur ránfugl að honum hefur verið líkt við engan annan en Gullörnin, stærsta ránfugl jarðarinnar. Og ránfuglar eins og Gullörninn verða auðvitað að eiga föt til að vera í á meðan þeir veiða smærri spörfugla. Ég á föt og ég á fataskáp. Ég á meira að segja tussusvít fataskáp.

Fataskápurinn minn er tvískiptur. Tvisvar sinnum 1 x 2,34 m. Í einum helmingnum er skógrind, buxnaslá, bindaskúffa og skyrtuhengi. Allt litaraðað, að sjálfsögðu.

Hinum helmingnum er skipt í tvo hluta, annars vegar skúffu fyrir stuttermaboli (neðst niðri), sokka( miðjunni) og nærbuxur + náttföt (efst). Fyrir ofan þær skúffur koma tvær litlar. Ein fyrir silkiklúta, og ein læst fyrir úr, ermahnappa og meira gúmmelaði. Þar fyrir ofan er hengi fyrir jakka og frakka og pelsinn minn (allir ránfuglar eiga pels). Í hinum helmingnum er hilla fyrir peysur og skúffa fyrir lacoste bolina mína. Þar fyrir ofan og neðan er almennt geymslurými, fyrir out-of-season föt og gömul tímarit.

Fálkinn kveður.



8.3 sekúndur
apríl 17, 2008, 7:02 pm
Flokkað undir: Sigtin

er meðaltíminn sem það tekur konu að ákveða hvort þú sért áhugaverður eða ekki. Fyrstu kynni skipta öllu máli. Þegar ég fer á veiðar klæði ég mig til að mynda sem bestu fyrstu kynni.

Embættismaðurinn (Þarfnast vængjamanns)

Nokkuð fín föt, Suit Up menntaskóla stæl. Láttu vængjamanninn hvísla að sigtinu að þú sért embættismaður í einhverju félagi með völd. Power Drillerarnir verða brjálaðir í þig.

Rokkarinn

Rifnar gallabuxur, gaddabelti, trommukjuður í einum vasa, gítarneglur í hinum. Hljómsveitarbolur, hettupeysa. Píurnar tjúllast

Iðnaðarmaðurinn

Skítugar málarabuxur, hamar í hægri sög í vinstri. Ryk í hárinu, vinnumannabelti, skítugar hendur. Þú færð allt sem þú vilt.

Hárgreiðslumaðurinn

Þröngar buxur, þröngur bolur (hvítur, með litamunstri), hip hárgreiðsla, skærin í vasanum og smá meik. Stelpurnar og strákarnir verða brjálaðir í þig.

Landsliðsmaðurinn (vængjamaður er góður)

Stuttbuxur, stuttermabolur, takkaskór. Mikill rakspíri. Ef þú ert með vængjamann, láttu hann standa aðeins frá þér og kalla yfir til þín þegar sigtið er hjá þér “Hey, er ekki landsliðsæfing á morgun”. Gerir píurnar brjál.

Kaninn

Camo buxur, byssa, handsprengja og hnífur. Hermannahattur og Dogtags æskileg. Allir elska hermenn, sérstakleg sigti.



Nýyrði
apríl 16, 2008, 5:37 pm
Flokkað undir: Ég er Awesome

Gyðingurinn elskar nýyrði og notar þau oft. Þau nýjustu og skemmtilegustu koma hér að neðan.

Powerdriller - no. Uppfærð útgáfa af Powerpíka. Pía sem dettur í gæja sem hafa völd. Ýktari útgáfan af kvenkyns stjórnarsleikju. “Hún er svo mikill Powerdriller” (oft fylgir með leikið borvélahljóð)

Djammelaði – no. Djamm + Gúmmelaði. Takk Hugi. “Djöfull var gott djammelaði um helgina”

að Lára – so. Uppfærð útgáfa af tökuyrðinu að “kidda”. “Ertu ekki að lára mig maður?”

Uppskeruhátíð Skrallmundar - no. Lokaball MH

Bonethugz - no. Samheiti yfir asnalega/lélega Myspace/bloggsíðu rappara/gangstera.

Rokkið í stjórninni – no. Sá einstaklingur innan stjórnar sem sér um rokkið. (Hr. Backmann 2007-2008, Hugi 2008-2009)

Einhver fleiri?



Hvað er að vera ég?
apríl 14, 2008, 11:25 pm
Flokkað undir: Ég er Awesome

Ég fékk mér kex og mjólk áðan.  Aftan á mjólkinni stóð “Hvað er að vera ég” og fyrir neðan það eitthvað hræðilegt rembingsljóð.

En það fékk mig til að hugsa… hvað er að vera ég?

Ég veit það ekki algjörlega, en ég veit hluta af því.  Ég veit það að þegar ég vakna, vakna ég sem awesome gaur, og þegar ég fer að sofa fer ég að sofa sem awesome gaur.  Þess á milli geri ég awesome hluti og segi awesome sögur.  Kaupi mér awesome mat og hluti og spjalla við awesome fólk.

Já, það er erfitt og krefjandi að vera ég, en það er bara svo gott, að ég legg allt þetta á mig til þess.

Klárinn kveður.